16.7.2010 | 00:00
Með stigin öll heim úr Árbænum
Víkingsliðin létu við kvurn sinn fingur á Árbæjarvelli og sigruðu Fylki í báðum leikjum kvöldsins. Víkingum hefur gengið upp og niður á þessum slóðum en í þetta sinn var Víkingssigur í A-leiknum verðskuldaður og sannfærandi en tæpt stóð að halda fengnum hlut til loka B-leiksins en tókst. Þrjú stig þar með í hús hjá báðum liðum og munar um minna. A-liðið er í bullandi toppbaráttu í sínum riðli og B-liðið hefur komið sér ögn betur fyrir í sínum riðli en ella, með tvo sigurleiki í röð.
Patrik skoraði eina mark fyrri hálfleiks A-liðanna en eftir hlé gerðu Víkingar svo rækilega út um leikinn að heimamenn vissu ekki um hríð hvort þeir voru að koma eða fara. Viktor skoraði, því næst Davíð Örn og Patrik á nýjan leik. Staðan orðin 0-4 og fór verulega um heimafólk á hliðarlínunni því Fylkir var yfirspilaður stóran hluta síðari hálfleiks. Undir lokin náðu heimamenn að bjarga andlitinu með því að pota boltanum í netið með því að hirða frákast eftir aukaspyrnu.
Fyrsta korter B-leiksins fór að miklum hluta fram á vallarhelmingi Víkings án þess samt að Fylki tækist að skora. Það var reyndar áberandi mikil værukærð yfir báðum liðum en sýnu meiri yfir okkar mönnum en svo fóru þeir að rumska og láta til sín taka á vellinum en án þess eina árangurs sem skiptir máli. Markalaust var í hálfleik. Framan af seinni hálfleik voru Víkingar tvímælalaust sterkara lið á vellinum og það var í samræmi við gang mála að Jóhann Gunnar skoraði eina markið fyrir gestina. Víkingar fengu fleiri færi, meðal annars átti Agnar Darri skot í stöngina innanverða og boltinn dansaði þar á marklínunni áður en Fylki tókst að bægja hættunni frá. Fylkismenn sóttu líka stíft á köflum að marki Víkings undir lokin og fengu ágæt færi en Halldór varði. Síðustu mínútur leiksins voru ansi lengi að líða. Víkingum var því létt þegar flautan loks gall og sigurinn var í höfn.
Næstu leikir í Íslandsmótinu verða í Víkinni þriðjudaginn 27. júlí. Þá koma Stjörnumenn í heimsókn. Það er vissulega skammt síðan þessi lið áttust við í Garðabæ en ástæðan er sú að leikjunum var frestað vegna öskufalls á höfuðborgarsvæðinu
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.5.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 193760
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Íþróttir
- Frakkland - Ísland, klukkan 19
- Kiel sigraði í Meistaradeildinni
- Aron Einar fyrirliði á móti Frökkum
- Ólafía jafnaði vallarmetið í Leirunni
- Helga Margrét hætti keppni í Svíþjóð
- Sarah í 8. sæti í 50 m skriðsundi
- Guðmundur tryggði Ólsurum sigur á Hetti
- Kiel yfir að loknum fyrri hálfleik
- Hrafnhildur í 8. sæti í 50 bringu
- Ísland í 4. sæti í boðsundinu á EM






